Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Fjallabrall Útivistar

30. janúar – 12. júní 2027

Góðar göngur, frábær félagsskapur og fullt af (fjalla)bralli!

Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022. Á vorönn 2027 fer hópurinn af stað í tíunda sinn og heldur áfram að bjóða upp á fjölbreyttar gönguferðir þar sem útivist, náttúruupplifun og góður félagsskapur fara saman.

Fjallabrall er ætlað öllum sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum og vilja njóta fjölbreyttra gönguferða í góðum félagsskap. Erfiðleikastig ferðanna er 1–2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu að hámarki um 15–16 km og uppsöfnuð hækkun ekki meiri en um 600 metrar. Í göngunum gefum við okkur tíma til að njóta umhverfisins, spjalla og fræðast. Fararstjórar miðla fróðleik um svæðin sem gengið er um og ýmislegt sem tengist útivist og fjallgöngum.

Fararstjórar: Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Fararstjórn

  • Hanna Guðmundsdóttir
  • Fríða Brá Pálsdóttir
  • Tryggvi Guðmundsson

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina. Opna gátlista: Dagsferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar