Básar á Goðalandi
71 gistipláss · Skálagisting allt árið · GPS N63°40,559 / V19°29,014
Básar á Goðalandi eru höfuðvígi Útivistar og segja má að þar slái hjarta félagsins. Gönguleiðir við allra hæfi er að finna í nágrenninu.
Gagnlegar upplýsingar
- Gistipláss
- 71 í tveimur skálum
- Innskráning
- Eftir kl. 14 á komudegi
- Brottför
- Skála skal rýma fyrir kl. 11
- Eldunaraðstaða
- Helluborð, eldunaráhöld, borðbúnaður og kolagrill
- Salerni
- Fyrir skálagesti allt árið
- Sturtur
- Gjaldfrjálsar fyrir skálagesti
- Tjaldsvæði
- Við skálana frá júní til september, með salernum og sturtum yfir sumartímann
- Verð fyrir nóttina
- 16.800 kr. almennt verð, 7.400 kr. fyrir félagsmenn
- Skálagistingu frá 1. október til 30. apríl þarf að panta í gegnum skrifstofu.
- Skálavörður í Básum (aðeins á sumrin): 563 0114
Áhugaverðir staðir í nágrenninu
- Gosstöðvar á Fimmvörðuhálsi
- Eyjafjallajökull
- Mýrdalsjökull
- Þórsmörk
- Útigönguhöfði
Um Bása
Árið 1980 hóf Útivist uppbyggingu aðstöðunnar í Básum á Goðalandi (Þórsmörk). Aðstaða á tjaldsvæðum var útbúin fyrst en næstu árin á eftir voru skálarnir tveir byggðir. Básahringurinn er fær fyrir bæði stóra og smáa fætur, fallegt útsýni er af Réttarfelli, Útigönguhöfði er góður fyrir þá sem vilja dálítið erfiði og Hvannárgilið er sem ævintýraveröld. Gott göngukort er til sölu hjá skálaverði í Básum og á skrifstofu Útivistar.
Aðkoma
Beygt er út af þjóðvegi 1 rétt austan Markarfljóts inn á veg 249 sem breytist við Stóru-Mörk í F249 Þórsmerkurveg. Þeim slóða er fylgt inn fyrir Álfakirkju og inn að Básum. Á þessari leið er yfir nokkrar jökulár að fara og er aðeins fært jeppum og stærri bílum. Í vatnavöxtum geta árnar orðið varasamar og er þá rétt að afla sér upplýsinga hjá kunnugum áður en haldið er af stað.
Tjaldgisting
Í júní til september þarf ekki að panta tjaldgistingu fyrirfram í Básum. Nægjanlegt er að koma, skrá sig og greiða við komu.
Aðgengi
Vorið 2018 var unnið að því að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða í Básum. Settir voru fláar víða, salerni með stoð og handföngum og rúmstæði á neðri hæð.
Myndir
Staðsetning
GPS-hnit: N63°40,559 / V19°29,014. Kort: OpenStreetMap.
Gönguleiðir sem liggja um skálann
Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is
