Fróðleikur
Ýmis fróðleikur sem komið getur ferðamanninum að gagni: leiðarlýsingar, gátlistar, matur og næring og skýringar á erfiðleikastigi ferða.
Leiðarlýsingar
Nokkrar ferðir hafa um árabil, jafnvel allt frá árdögum Útivistar, verið fastur liður á dagskrá félagsins.
Fimmvörðuhálsum 25 km · um 1.100 mHálsinn á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls nefnist Fimmvörðuháls. Leiðin um hálsinn, á milli Skóga og Þórsmerkur, er ein af vinsælustu gönguleiðum hér á landi.
Strútsstígur4 dagar · Álftavötn og StrúturUm sunnanvert Fjallabak liggur falleg gönguleið frá Hólaskjóli í austri og vestur í Hvanngil. Fagrir fossar verða á vegi okkar og fögur fjallasýn, og hin rómaða Strútslaug bíður göngumanna.
Sveinstindur – Skælingar4 dagar · Sveinstindur, Skælingar og HólaskjólSveinstindur–Skælingar er helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind, þar sem útsýnið yfir Langasjó er hreint ólýsanlegt, og lýkur í Hólaskjóli eftir göngu um Eldgjá.
Laugavegurinn5 dagar · Básar á GoðalandiGönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegur. Í ferðinni gefst kostur á að kynnast ótrúlega fjölbreyttu og fögru landslagi: heitum laugum, hverum og jöklum.
Reykjavegurinnum 125 km · 7 dagsferðirReykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins. Útivist gengur hann í sjö leggjum fyrri hluta árs 2027.
Dalastígur4 dagar · Hungurfit, Dalakofinn og LandmannahellirDalastígur er gönguleið á fáförnum en virkilega áhugaverðum slóðum að Fjallabaki, frá Mosum skammt frá Markarfljóti í Landmannalaugar.
Gátlistar
Of þungar byrðar gera ferðina erfiðari og draga úr ánægju göngumannsins. Hakaðu við jafnóðum og þú pakkar; listinn man hvar þú varst.
Listi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina.
Trússferð24 atriðiListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir.
Bakpokaferð30 atriðiListi fyrir bakpokaferð þar sem sofið er í tjaldi. Grundvallarreglan er að vera með svo léttar byrðar sem mögulegt er, án þess þó að skilja neitt eftir sem nauðsynlegt er að hafa.
Jeppaferð24 atriðiGátlisti til viðmiðunar í jeppaferðum Útivistar. Í ferðunum fara samskipti fram á Útivistarrásinni sem er númer 41.
Erfiðleikastig ferða
Gönguferðir eru merktar með skóm og skíðaferðir með skíðum, frá einu tákni upp í fjögur.
- Léttar ferðir
Eru ætlaðar öllum.
Ferðir á þessu stigi - Miðlungs erfiðar ferðir
Flestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.
Ferðir á þessu stigi - Erfiðar ferðir
Einungis fyrir vana ferðamenn sem geta borið með sér allan útbúnað og eru færir um að takast á við ófyrirsjáanlegan vanda.
Ferðir á þessu stigi - Mjög erfiðar ferðir
Ferðir þar sem fólk ber með sér allan búnað og þarf að takast á við mikinn hæðarmun.
Ferðir á þessu stigi
Jeppaferðir
| 1. Lítið | Harðfenni, dregið í skafla á stöku stað. Þéttur og þjappaður snjór. |
| 2. Meðal | Þéttur snjór, lítið um púðursnjó eða erfiða skafla, nokkuð um skarir. |
| 3. Mikið | Jöklar, nýfallinn djúpur snjór. |
| 4. Mjög mikið | Langar dagleiðir, þungur snjór og/eða púðursnjór. |
Búnaður í jeppaferðum
Í jeppaferðum á vegum Útivistar er gerð krafa um að í hverjum bíl sé skófla, kaðall og VHF-talstöð. Í ferðunum fara samskipti fram á Útivistarrásinni sem er númer 41.
Gátlisti fyrir jeppaferðMatur og næring
Mataræði er eitt af undirstöðuatriðum ánægjulegrar ferðar. Gætið þess að borða vel kvöldið fyrir göngu.
- Morgunverður
Matur sem er ríkur af kolvetnum, s.s. gróft korn og ávextir, og próteinrík fæða. Til dæmis súrmjólk með 100–150 g af múslí eða hafragrautur, hrökkbrauð með smjöri og osti og te eða kaffi.
- Hádegismatur
Flatbrauð eða gróft brauð með kæfu eða osti, heit pakkasúpa og orkuríkt nasl á eftir.
- Snarl yfir daginn
Harðfiskur, rúsínur, þurrkaðir ávextir, hnetur, súkkulaði eða kex.
- Kvöldverður
Fiturík fæða, því þá hefur líkaminn nægan tíma til að melta. Frostþurrkaður matur er vinsæll, en einnig má mæla með pasta og sósu sem má betrumbæta með rjóma eða rjómaosti. Kakó og kex eða súkkulaði á eftir.
- Drykkir
Nóg af vatni yfir daginn; ef vitað er um læki á leiðinni má fylla á vatnsílát þar. Heitt vatn á brúsa er nauðsynlegt, sérstaklega ef kalt er eða hráslagalegt.
