Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Reykjavegurinn

Lengd: um 125 km · Leggir: 7 dagsferðir · Tímabil: 27. febrúar – 5. júní 2027

Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins. Útivist gengur hann í sjö leggjum fyrri hluta árs 2027.

Leggirnir sjö

  1. 1
    Reykjanesviti – Golfskálinn í Grindavík18 km · 200 m hækkun

    Í upphafi er fylgt hluta af Hundrað gíga leiðinni, um einkennandi eldfjallalandslag yst á Reykjanesi. Reykjaveginum er fylgt að Prestastíg, gamalli þjóðleið milli Hafna og Staðarhverfis í Grindavík.

  2. 2
    Golfskálinn í Grindavík – Leirdalur16 km · 350 m hækkun

    Ný hraun hafa farið yfir stóran hluta upphaflegu leiðarinnar og því liggur leggurinn nú um Grindavík, meðfram Suðurstrandarvegi að Festarfjalli, niður í Nátthaga og að bílastæðinu í Leirdal.

  3. 3
    Leirdalur – Sogin14 km · 250 m hækkun

    Gömlu Krýsuvíkurgötunni fylgt yfir Grákvíguhraun og síðan Reykjaveginum til norðurs, um hraun og meðfram Núpshlíðarhálsi, um Selsvelli að bílastæðinu við Sogalæk.

  4. 4
    Sogin – Kaldársel22 km · 500 m hækkun

    Yfir háls við Selsvallafjall og niður að Djúpavatni, norður Móhálsadal og inn á Hrauntungustíg, gamla þjóðleið milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Að lokum er Undirhlíðavegi fylgt norður í Kaldársel.

  5. 5
    Kaldársel – Bláfjallaskáli16–17 km · 500–550 m hækkun

    Selvogsgötu fylgt um Húsfellsbruna upp að Grindaskörðum. Við Draugahlíðar er beygt til austurs og gengið um hraunið við Strompa að Bláfjallaskála.

  6. 6
    Bláfjallaskáli – Hellisheiðarvirkjun20–22 km · 700 m hækkun

    Upp á Bláfjallahorn, hæsta hluta Reykjavegarins, niður austan Bláfjalla, um Leitahraun að Eldborgunum, yfir Þrengslaveg og um Svínahraunsbruna fram hjá Kolviðarhóli.

  7. 7
    Hellisheiðarvirkjun – Nesjavellir15 km · 500 m hækkun

    Yfir Húsmúla og inn í Engidal, undir Henglinum inn í Marardal, upp á Kýrdalshrygg og Háhrygg og niður að Nesjavallavirkjun, þar sem Reykjaveginum lýkur.

Um raðgönguna

Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Útivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti. Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir því sem hentar á hverjum legg.

Ferðir á dagskrá

27feb.lau.Raðganga um Reykjaveginn - 1. áfangiDagsferðir · Dagsferð · Farið á eigin bílum. Hist við Golfskálann í Grindavík kl 9:00 og sameinast í bíla að upphafsstað.9.900 kr.Félagsverð 5.900 kr.5.900 kr.Almennt verð 9.900 kr.27feb.lau.Raðganga um Reykjaveginn - allar göngurnarDagsferðir · Sjá hverja göngu fyrir sig39.900 kr.Aðeins fyrir félagsmenn13marslau.Raðganga um Reykjaveginn, 2. leggurDagsferðir · Dagsferð · Farið á eigin bílum. Hist á bílastæði við Leirdal kl. 9:00 og sameinast í bíla að upphafsstað.8.900 kr.Félagsverð 5.900 kr.5.900 kr.Almennt verð 8.900 kr.3apr.lau.Raðganga um Reykjaveginn, 3. leggurDagsferðir · Dagsferð · Brottför kl. 8:30: Hist á bílastæði við íþróttahúsið Ásvöllum og rúta tekin þaðan13.900 kr.Félagsverð 9.900 kr.9.900 kr.Almennt verð 13.900 kr.17apr.lau.Raðganga um Reykjaveginn, 4. leggurDagsferðir · Dagsferð · Kl. 8:00 Hist á bílastæði fyrir Helgafellsgöngur við Kaldársel. Rúta tekin þaðan að upphafsstað.13.900 kr.Félagsverð 9.900 kr.9.900 kr.Almennt verð 13.900 kr.8maílau.Raðganga um Reykjaveginn, 5. leggurDagsferðir · Dagsferð · Kl. 8:00 Hist á bílastæði fyrir Helgafellsgöngur við Kaldársel. Eftir gönguna er rúta tekin aftur í bílana.13.900 kr.Félagsverð 9.900 kr.9.900 kr.Almennt verð 13.900 kr.22maílau.Raðganga um Reykjaveginn, 6. leggurDagsferðir · Dagsferð · Kl. 8:30 Eigin bílar: Hist á lokastað göngu við Hellisheiðarvirkjun.8.900 kr.Félagsverð 5.900 kr.5.900 kr.Almennt verð 8.900 kr.5júnílau.Raðganga um Reykjaveginn, 7. leggurDagsferðir · Dagsferð · Kl. 8:30 Hist á upphafsstað göngu við Hellisheiðarvirkjun og rúta tekin til baka í bíla eftir göngu.13.900 kr.Félagsverð 9.900 kr.9.900 kr.Almennt verð 13.900 kr.