Álftavötn
20 gistipláss · Salerni og rennandi vatn yfir hásumarið · GPS N63°53,890 / V18°41,467
Skálinn í Álftavötnum kúrir á gróðursælum bökkum vatnanna, vinalegur og þægilegur skáli án alls íburðar. Þar upplifa gestir einfaldleika hálendisins og kyrrð fjallanna.
Gagnlegar upplýsingar
- Gistipláss
- 20
- Tjaldsvæði
- Mjög gott
- Salerni
- Yfir hásumarið, ekki klósettpappír
- Rennandi vatn
- Yfir hásumarið
- Eldunaraðstaða
- Gashellur, eldunaráhöld og borðbúnaður
- Grillaðstaða
- Til staðar, koma þarf með kol
- Verð fyrir nóttina
- 9.800 kr. almennt verð, 5.200 kr. fyrir félagsmenn
Áhugaverðir staðir í nágrenninu
- Strútslaug
- Svartahnúksfjöll
- Gjátindur
- Eldgjá
- Steinbogi á Syðri-Ófæru
Um skálann
Gangnamannaskálar eru ótvírætt hluti af sögu þjóðarinnar og umferð fólks um hálendið. Skáli Útivistar í Álftavötnum var endurreistur árið 2001 og endurbættur árið 2010. Afraksturinn er vinalegur og þægilegur skáli án íburðar. Athugið að skálinn er ekki á Laugaveginum.
Aðkoma úr Skaftártungu
Algengast er að ekið sé inn á Fjallabaksleið nyrðri (F208). Skammt norðan við hálendismiðstöðina Hólaskjól er beygt til vinstri inn á veg F233. Ekið er yfir Syðri-Ófæru á vaði sem getur verið stórgrýtt og varasamt fyrir minni jeppa. Að vaði loknu er beygt til vinstri og ekinn slóði að skálanum; ganga þarf um 200 m í lokin.
Aðkoma frá Mælifellssandi
Ef komið er eftir Fjallabaksleið syðri yfir Mælifellssand er ekið yfir Hólmsá norðan við Háöldu og síðan eftir F233 framhjá Svartahnúksfjöllum og um Álftavatnakrók að slóðanum að skálanum.
Skálavarsla
Skálavörður er ekki á staðnum en skálaverðir í Strútsskála hafa eftirlit með skálanum. Gisting í skála er bókuð fyrirfram. Tjaldstæði er hægt að greiða hjá skálaverði í Strút, á skrifstofu Útivistar eða í greiðslubauk í skálanum.
Myndir
Staðsetning
GPS-hnit: N63°53,890 / V18°41,467. Kort: OpenStreetMap.
Gönguleiðir sem liggja um skálann
Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is
