Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Fimmvörðuskáli

18 gistipláss · Opinn 15. júní til 31. ágúst · GPS N63°37,320 / V19°27,093

Fimmvörðuskáli

Fimmvörðuskáli stendur á Fimmvörðuhálsi þar sem hann er hæstur, um það bil 600 metra austan við vörðurnar fimm sem hálsinn dregur nafn sitt af. Örstutt frá skálanum eru nýjustu eldstöðvar Íslands, Magni og Móði.

Gagnlegar upplýsingar

Gistipláss
18
Hæð
1.086 m
Salerni
Sérstök salernisaðstaða, rennandi vatn er ekki alltaf til staðar
Eldunaraðstaða
Gashellur, eldunaráhöld og borðbúnaður
Sími í skála
893 4910 (á sumrin)
Verð fyrir nóttina
12.900 kr. almennt verð, 6.300 kr. fyrir félagsmenn
  • Hægt er að panta gistingu á vetrartíma í gegnum skrifstofu.
  • Almennt verð er 15.300 kr. frá 1. júlí til 15. ágúst, annars 12.900 kr.

Áhugaverðir staðir í nágrenninu

  • Magni og Móði
  • Eyjafjallajökull
  • Mýrdalsjökull
  • Þórsmörk
  • Básar á Goðalandi

Um skálann

Skálinn á Fimmvörðuhálsi var endurreistur af sjálfboðaliðum úr röðum félagsmanna Útivistar árin 1990–1991. Fyrir var skáli Fjallamanna sem var orðinn ónýtur, en þeir höfðu gefið Útivist réttindi sín varðandi hann. Skálinn eykur öryggi ferðamanna um Fimmvörðuháls og er ákjósanlegur áfangastaður á göngu yfir Hálsinn.

Aðkoma

Hægt er að aka að Baldvinsskála, aðeins neðar á Hálsinum, en þaðan er um 30–40 mínútna gangur upp að Fimmvörðuskála. Skálinn er mitt á milli tveggja gönguleiða yfir Hálsinn: vestan við hann er leið sem fylgir Skógaánni alla leið neðan frá Skógum og austan við hann leið sem liggur frá vaðinu á Skógaá upp að Baldvinsskála. Leiðirnar sameinast við Goðahraun.

Vatn og salerni

Salernismálum skálans er háttað með sérstökum hætti vegna þess að útilokað er að koma fyrir rotþró og ferðamenn eru beðnir um að fara að þeim reglum sem upp eru settar. Ekki er alltaf rennandi vatn á svæðinu og síðari hluta sumars er erfitt að taka snjó til bræðslu.

Skálavarsla

Skálavörður er í skálanum frá miðjum júní og út ágúst, en utan þess tíma er skálinn lokaður. Neyðarskjól er í anddyri norðan megin í húsinu (gengið inn austan megin).

Myndir

Á Magna
Á Magna
Á leið yfir Heljarkamb
Á leið yfir Heljarkamb
Eyjafjallajökull
Eyjafjallajökull
Niður Bröttufönn, Morinsheiði framundan
Niður Bröttufönn, Morinsheiði framundan
Skógafoss
Skógafoss

Staðsetning

GPS-hnit: N63°37,320 / V19°27,093. Kort: OpenStreetMap.

Gönguleiðir sem liggja um skálann

Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is

Ferðir Útivistar á þessum slóðum