Fimmvörðuháls - dagsferð
3. júlí 2027 · Frá Mjódd kl 8:00

Fimmvörðuháls - dagsferð
Í þessari ferð er Fimmvörðuhálsinn gengin á einum degi. Lagt er af stað á laugardagsmorgni með rútu frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju kl. 07:00 og keyrt að Skógum þar sem gangan hefst. Gengið er yfir hálsinn og niður í Bása þar sem rútan bíður og tekur ferðalanga beint aftur í bæinn.
Nánari lýsing.
Leiðin yfir hálsinn
- 1Skógar – Fimmvörðuskáli16 km · um 5 klst.
Leiðin liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði. Efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1.100 m hæð. Frá skálanum er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsinum.
- 2Fimmvörðuskáli – Básar13 km · um 4,5 klst.
Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn. Þaðan er haldið um Heljarkamb, farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Af norðanverðum hálsinum er í góðu skyggni ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og Landmannaafrétt.
Gott að vita
- ÚtbúnaðurListi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina. Opna gátlista: Dagsferð
- Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
- GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
- Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
