Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Fimmvörðuháls

Vegalengd: um 25 km · Hæst: um 1.100 m · Göngutími: um 10 klst.

Hálsinn á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls nefnist Fimmvörðuháls. Leiðin um hálsinn, á milli Skóga og Þórsmerkur, er ein af vinsælustu gönguleiðum hér á landi.

Leiðin yfir hálsinn

  1. 1
    Skógar – Fimmvörðuskáli16 km · um 5 klst.

    Leiðin liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði. Efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1.100 m hæð. Frá skálanum er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsinum.

  2. 2
    Fimmvörðuskáli – Básar13 km · um 4,5 klst.

    Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn. Þaðan er haldið um Heljarkamb, farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Af norðanverðum hálsinum er í góðu skyggni ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og Landmannaafrétt.

Tvenns konar snið

Útivist býður upp á Fimmvörðuhálsferðir með tvenns konar sniði: annars vegar er gengið á tveimur dögum með gistingu í Fimmvörðuskála og hins vegar er hálsinn genginn í einum rykk með gistingu í Básum.

Farangur fluttur í Bása

Innifalið í ferðinni er sending á einum pakka í Bása á hvern þátttakanda. Merkja þarf farangur vel: nafn eiganda þarf að koma fram, sem og „Útivist í Básum“.

Búðu þig vel

Á Fimmvörðuhálsi er allra veðra von og því áríðandi að hafa góð hlífðarföt meðferðis. Góðir gönguskór eru mikilvægir sem og göngubuxur úr efni sem þornar fljótt og heldur hita þó að blotni.

Ferðir á dagskrá