Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Tindfjallasel

30 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst · GPS N63°45,398 / V19°41,976

Tindfjallasel

Tindfjallasel er neðsti skálinn af þremur í Tindfjöllum. Hann er í 680 m hæð, afar vel búinn og tilvalið að dveljast þar og njóta útivistarsvæðisins í Tindfjöllum, hvort sem er að sumri eða vetri.

Gagnlegar upplýsingar

Gistipláss
30
Hæð
680 m
Salerni
Vatnssalerni yfir hásumarið
Rennandi vatn
Yfir hásumarið
Eldunaraðstaða
Gashellur, eldunaráhöld og borðbúnaður
Verð fyrir nóttina
9.800 kr. almennt verð, 5.200 kr. fyrir félagsmenn
  • Hægt er að panta gistingu á vetrartíma í gegnum skrifstofu.

Áhugaverðir staðir í nágrenninu

  • Ýmir og Ýma
  • Sindri
  • Fjallaskíðasvæði að vetri og gönguleiðir að sumri

Um skálann

Útivist tók skálann í notkun í samvinnu við Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík og kemur hann í stað eldri skála sveitarinnar. Þetta er 30 manna skáli sem hentar vel fyrir bækistöðvarferðir, hvort heldur er á gönguskíðum að vetri eða fyrir gönguferðir að sumarlagi.

Tindfjöll

Fjallamenn með Guðmund frá Miðdal í fararbroddi sóttu mikið á þetta svæði um miðja síðustu öld og byggðu fyrsta skálann í Tindfjöllum árið 1941. Þekktustu tindarnir eru Ýmir og Ýma, en af öðrum má nefna Saxa, Búra, Haka, Hornklofa, Sindra og Ásgrindur að ógleymdum Tindi sem svæðið dregur nafn sitt af.

Staðsetning

GPS-hnit: N63°45,398 / V19°41,976. Kort: OpenStreetMap.

Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is

Ferðir Útivistar á þessum slóðum