Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Strútur á Mælifellssandi

26 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst · GPS N63°50,330 / V18°58,477

Strútsskáli

Skálinn við Strút stendur í fallegu dalverpi inn af Mælifellssandi og er ákjósanlegur áningarstaður á milli Álftavatna í austri og Hvanngils eða Emstra í vestri.

Gagnlegar upplýsingar

Gistipláss
26
Tjaldsvæði
Við skálann
Salerni og sturta
Yfir hásumarið
Eldunaraðstaða
Gashellur, eldunaráhöld, borðbúnaður og kolagrill
Verð fyrir nóttina
12.900 kr. almennt verð, 6.300 kr. fyrir félagsmenn
  • Hægt er að panta gistingu á vetrartíma í gegnum skrifstofu.

Áhugaverðir staðir í nágrenninu

  • Strútur
  • Strútslaug
  • Mælifell
  • Torfajökulssvæðið
  • Krókagil

Um skálann

Skálinn við Strút var byggður haustið 2002. Hægt er að velja um fjölda áhugaverðra gönguleiða í nágrenni skálans. Göngukort er til sölu á skrifstofu Útivistar eða hjá skálaverði, sem er á staðnum frá byrjun júlí og fram í miðjan ágúst. Einnig getur Útivist boðið hópum upp á leiðsögn staðkunnugra fararstjóra í lengri eða skemmri ferðum út frá skálanum.

Aðkoma

Bílvegur liggur að skálanum frá Mælifellssandi. Sé komið Fjallabaksleið syðri (F210) að vestan er beygt til norðurs á vegamótum við N63°48,023 / V18°57,351. Einnig er hægt að aka Öldufellsleið (F232) að austan og beygja til norðurs á sömu vegamótum.

Myndir

Tjaldaðstaða
Tjaldaðstaða
Mælifell
Mælifell
Strútslaug
Strútslaug
Strútur
Strútur
Inni í skála
Inni í skála

Staðsetning

GPS-hnit: N63°50,330 / V18°58,477. Kort: OpenStreetMap.

Gönguleiðir sem liggja um skálann

Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is

Ferðir Útivistar á þessum slóðum