Bækistöðvaferð 60+ í Strút
16.–19. ágúst 2027 · Frá Mjódd kl. 10:00

Léttar ferðirEru ætlaðar öllum.
Eftir velheppnaða bækistöðvaferð í Strút síðastliðið sumar verður leikurinn endurtekinn.
Jafnt yngri sem eldri Útivistarfélagar eiga minningar frá gönguferðum að Fjallabaki. Ferðafélagið Útivist tekur áskorun frá hópi 60+ þátttakenda frá síðastliðnu sumri og bíður aftur uppá þriggja nátta bækistöðvaferð í Strút skála félagsins, að syðra Fjallabaki. Þessi ferð er tilvalin fyrir eldri félaga sem vilja endurupplifa góðar minningar, sem og nýja félaga á virðulegum aldri sem langar að kynnast fagurri náttúru undir leiðsögn kunnugra.
Fararstjórar: Jóhanna Benediktsdóttir og Guðbjartur Guðbjartsson.
Fararstjórn
Jóhanna Benediktsdóttir
Gott að vita
- ÚtbúnaðurListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir. Opna gátlista: Trússferð
- Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
- GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
- Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
