Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Skælingar

16 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst · GPS N63°58,849 / V18°31,319

Á Skælingum

Umhverfis skálann í Skælingum eru sérstæðir hraundrangar sem breyta svæðinu í náttúrulegan lystigarð. Skálinn einkennist af fornri íslenskri byggingarhefð með vegghleðslum úr grjóti.

Gagnlegar upplýsingar

Gistipláss
16
Tjaldstæði
Mjög gott
Salerni
Yfir hásumar, ekki klósettpappír
Neysluvatn
Sótt í lækinn
Eldunaraðstaða
Gashellur og eldunaráhöld
Upphitun
Gasofn
Verð fyrir nóttina
9.800 kr. almennt verð, 5.200 kr. fyrir félagsmenn
  • Hægt er að panta gistingu á vetrartíma í gegnum skrifstofu.

Áhugaverðir staðir í nágrenninu

  • Gjátindur
  • Eldgjá
  • Uxatindar
  • Grettir

Um skálann

Í einstöku umhverfi í Skælingum stendur lítill skáli sem var fyrrum gangnamannaskáli Skaftártungubænda. Félagsmenn Útivistar endurbyggðu hann á árunum 1996–1997. Húsið er ekki einangrað og hentar því ekki til vetrarferða.

Aðkoma

Af Fjallabaksleið nyrðri (F208) er ekið yfir Nyrðri-Ófæru á vaði rétt austan við Eldgjá og upp á eystri brún Eldgjár eftir veginum að Gjátindi. Fljótlega eru gatnamót (N63°56,974 / V18°37,635) þar sem ekið er niður brekku í átt að Skaftá og þeim slóða fylgt að skálanum. Önnur og torfærari leið liggur frá slóðanum að Langasjó (F235) um Blautulón; hana ætti ekki að fara á óbreyttum jeppum.

Skálavarsla

Skálavörður er ekki í skálanum en skálaverðir í Strútsskála og Hólaskjóli hafa eftirlit með honum. Gistingu og tjaldstæði er hægt að greiða á skrifstofu Útivistar eða í þar til gerðan bauk í skálanum.

Myndir

Á Skælingum
Á Skælingum
Á Skælingum
Á Skælingum
Eldgjá
Eldgjá
Uxatindar
Uxatindar
Innkoma í skála
Innkoma í skála

Staðsetning

GPS-hnit: N63°58,849 / V18°31,319. Kort: OpenStreetMap.

Gönguleiðir sem liggja um skálann

Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is

Ferðir Útivistar á þessum slóðum