Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Sveinstindur - Skælingar

5.–8. ágúst 2027 · Frá Mjódd kl. 08:00

Miðlungs erfiðar ferðirFlestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.

Þessi leið er ein helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar, meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga. Ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli. Ferðirnar eru trússferðir. Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum.

Síðasta kvöldið er boðið upp á grillveislu sem þáttakendur sjá saman um að útbúa

Leiðin dag fyrir dag

  1. 1
    Langisjór – Sveinstindur5–6 km · 500 m hækkun

    Brottför frá Mjódd kl. 08:00. Ekið upp Skaftártungu og að Langasjó. Gengið er á Sveinstind (1.098 m y.s.) og þaðan niður sunnan megin að skála Útivistar við bakka Skaftár. Í góðu skyggni sést til Öræfajökuls í austri og Heklu í vestri.

  2. 2
    Sveinstindur – Skælingar18 km · 600–700 m hækkun

    Gengið með Skaftá, fram hjá flúðum og nafnlausum blæjufossi og fram um Hvanngil þar sem þarf að vaða Hvanná. Farið er um Uxatindagljúfur milli Uxatinda og Grettis, upp á Biðil og fram Skælingana að skála Útivistar í Stóragili.

  3. 3
    Skælingar – Hólaskjól20–22 km · 500–600 m hækkun

    Gengið fram Skælinga um Miðbotna og upp að börmum Eldgjár. Gjátindur (943 m y.s.) toppaður, farið ofan í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður í návígi áður en gengið er niður í Hólaskjól þar sem gist er síðustu nóttina.

  4. 4
    Hólaskjól og heimferðStutt ganga

    Farið í stutta göngu í nágrenni Hólaskjóls, t.d. upp hraunið með Syðri-Ófæru að fossinum sem heimamenn kalla nafnlausa fossinn. Brottför frá Hólaskjóli upp úr kl. 10:00.

Leiðarlýsing: Sveinstindur – Skælingar

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir. Opna gátlista: Trússferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar

Aðrar brottfarir í sömu ferð