Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Fjölbreyttar ferðir í skemmtilegum félagsskap síðan 1975

Dagsferðir, helgarferðir og lengri ferðir árið um kring, allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir. Og sjö fjallaskálar, frá Básum á Goðalandi inn að Sveinstindi.

Fimmvörðuháls, frá Skógum í Bása

EyjafjallajökullMýrdalsjökull16 km · um 5 klst. · 1.036 m hækkun13 km · um 4,5 klst. · 936 m lækkun1SkógarUpphaf göngu2SkógaáFossar á leiðinni3Fimmvörðuskáli1.086 m4Magni og MóðiGosstöðvar5HeljarkamburBrattafönn og Kattahryggir6Básar150 m

3Fimmvörðuskáli1.086 m

Skáli Útivistar stendur þar sem hálsinn er hæstur, um 600 metra austan við vörðurnar fimm sem hann dregur nafn sitt af. Þar eru 18 gistipláss og skálavörður frá miðjum júní og út ágúst.

Skoða Fimmvörðuskála

Ferðir við allra hæfi

Tilgangur félagsins er að stuðla að útivist fólks í hollu og óspilltu umhverfi.

60+ ferðir

Bækistöðvaferðir fyrir þau sem náð hafa sextugsaldri, í boði frá sumrinu 2022. Gist er í skála, boðið upp á gönguferðir við allra hæfi og fararstjórarnir eru sjálfir 60+.

Útivistargírinn

Kvöldgöngur þar sem saman koma nýliðar og reynsluboltar. Göngurnar taka 2–4 klukkustundir, þátttakendur koma sér á staðinn á einkabílum og þátttaka er félagsmönnum og öðrum að kostnaðarlausu.

Jeppaferðir

Þátttakendur koma á eigin jeppum og ferðast í hóp undir leiðsögn fararstjóra. Vetrarferðir með kröfum um búnað jeppanna og sumar- og haustferðir sem henta lítið breyttum eða óbreyttum jeppum.

Myndakvöld

Haldin fimm sinnum yfir vetrarmánuðina. Myndir og ferðasögur úr ferðum Útivistar, kaffi og vöfflur. Aðgangur kostar 2.000 kr. og er greiddur með reiðufé.

Félagsaðild borgar sig fljótt

Félagsgjald 2027 er 10.000 kr. Það veitir verulegan afslátt af ferðum og mikinn afslátt í skálum og á tjaldsvæðum.

Skoða félagsaðild
  • Nótt í Básum16.800 kr.7.400 kr.
  • Nótt í Strút12.900 kr.6.300 kr.
  • Aðventuferð í Bása20.–22. nóvember 202663.000 kr.52.000 kr.
  • Tindfjöll Bækistöðvaferð - Hungurfit1.–4. júlí 2027109.000 kr.95.000 kr.
  • Raðganga um Reykjaveginn - 1. áfangi27. febrúar 20279.900 kr.5.900 kr.

Áður en lagt er af stað

Mikilvægt er að hafa meðferðis allt sem göngumaðurinn þarfnast, en jafn mikilvægt er að taka ekki með sér óþarfa hluti. Gátlistarnir muna hvað þú ert búin(n) að pakka.

Allur fróðleikur

Fréttir

  • Ferðir 2027

    Ferðir ársins 2027 eru farnar að koma á vefinn.

  • Uppfærðar upplýsingar vegna krefjandi aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls

    Uppfærðar upplýsingar um leiðina yfir Fimmvörðuháls.

  • Vinnuferð í Bása

    Við blásum til vinnuferðar í Bása helgina 15.–17. maí. Margir telja Bása einn fallegasta stað landsins og það er gefandi vinna að gera þessa paradís enn betri. Á laugardagskvöldið verður að sjálfsögðu sönn Básagleði.

Fleiri fréttir