Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Um Útivist

Síðan 1975 hefur Útivist boðið félagsmönnum sínum og öðrum upp á fjölbreyttar ferðir í skemmtilegum félagsskap. Tilgangur félagsins er að stuðla að útivist fólks í hollu og óspilltu umhverfi.

Horft yfir Þórsmörk

Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldferðir. Á dagskrá jeppadeildarinnar eru margar mismunandi ferðir jafnt sumar sem vetur. Ferðanefndir og framkvæmdastjóri sjá um undirbúning og skipulag ferða.

Fjöldi fólks leggur hönd á plóg í sjálfboðavinnu, bæði við nefnda- og stjórnarstörf, vinnuferðir í skála og hvaðeina sem gera þarf. Fjöldi fararstjóra leiðir ferðir félagsins og tveir starfsmenn starfa á skrifstofu þess.

Saga Útivistar

Allt frá því Útivist kom upp aðstöðu í Básum hefur hjarta félagsins slegið þar.

  1. 1975
    Útivist stofnuð

    Félagið var stofnað sunnudaginn 23. mars 1975 á fundi í Lindarbæ í Reykjavík þar sem mættir voru 54 stofnfélagar. Fyrsta gangan var á Keili 6. apríl og allar götur síðan hefur verið farin afmælisganga á fjallið.

  2. 1980
    Uppbygging hefst í Básum

    Félagið fékk úthlutað svæði í Básum á Goðalandi og sumarið 1980 hófust byggingarframkvæmdir við skála. Útivistarfélagar unnu að byggingunni í sjálfboðavinnu.

  3. 1983
    Skálinn í Básum vígður

    Í ágúst 1983 var skálinn vígður. Þá hafði einnig verið byggt salernishús og leitt vatn á svæðið. Annar og minni skáli var tilbúinn á 10 ára afmæli félagsins.

  4. 1990
    Fimmvörðuskáli endurreistur

    Sjálfboðaliðar úr röðum félagsmanna endurreistu skálann á Fimmvörðuhálsi árin 1990–1991.

  5. 1996
    Skælingar og Sveinstindur

    Gamlir gangnamannaskálar voru endurbyggðir í Skælingum 1996–1997 og við Sveinstind 1999, með byggingarlagi gamla tímans.

  6. 2001
    Álftavötn og Strútur

    Skálinn í Álftavötnum var endurreistur árið 2001 og skálinn við Strút byggður haustið 2002.

  7. 2021
    Flutt í Katrínartún

    Skrifstofan flutti í Katrínartún 4. Sama haust lauk orkuskiptum í Básum þegar rafmagnskynding leysti olíukyndingu af hólmi.

  8. 2022
    Fjallabrall og 60+ ferðir

    Gönguhópurinn Fjallabrall fór í gang á haustdögum 2022 og sama ár hóf félagið að bjóða bækistöðvaferðir fyrir 60 ára og eldri.

Fararstjórar

Fararstjórar Útivistar leiða ferðir félagsins og miðla fróðleik um svæðin sem gengið er um.

  • Helga Davíðsdóttir
  • Gylfi Arnbjörnsson
  • Hanna Guðmundsdóttir
  • Steinar Sólveigarson
  • Kristjana Ósk Birgisdóttir
  • Auður Jónasdóttir
  • Páll Arnarson
  • Þórarinn Eyfjörð
  • Eydís Líndal
  • Margrét Harðardóttir
  • Guðrún Svava Viðarsdóttir
  • Hrönn Baldursdóttir
  • Guðrún Hreinsdóttir
  • Helga Harðardóttir
  • Steinar Frímannsson
  • Ingvi Stígsson
  • Jóhanna Benediktsdóttir
  • Einar Aðalsteinsson
  • Emelía Magnúsdóttir
  • Edda Sól Ólafsdóttir Arnholtz
  • Fríða Brá Pálsdóttir
  • Ingvar Júlíus Baldursson
  • Tryggvi Guðmundsson
  • Íris Hrund Halldórsdóttir

Skrifstofa

Skrifstofa veitir nánari upplýsingar um einstakar ferðir og tekur við bókunum bæði í ferðir og gistingu í skála.

  • Hörður MagnússonFramkvæmdastjóri
  • Þórdís SigurðardóttirSkrifstofa
Hafa samband

Stjórn

Stjórn Útivistar er skipuð átta félagsmönnum og sér um daglegan rekstur félagsins ásamt framkvæmdastjóra. Stjórnin fundar að jafnaði á tveggja vikna fresti.

  • Guðfinnur Þór Pálsson, formaður
  • Guðrún Svava Viðarsdóttir
  • Hanna Guðmundsdóttir
  • Hákon Gunnarsson
  • Helga S. Davíðsdóttir
  • Páll Arnarsson
  • Sigurður Ingi Hauksson
  • Þorsteinn Pálsson

Kjarni og félagslíf

Kjarni er staðgengill aðalfundar sem æðsta vald félagsins á milli aðalfunda. Alls eiga 36 kjörnir félagar sæti í Kjarna, auk heiðursfélaga.

Myndakvöld eru haldin fimm sinnum yfir vetrarmánuðina. Þar koma félagsmenn saman til að skoða myndir og hlýða á ferðasögur, og kaffiveitingarnar eru eitt aðalsmerki kvöldanna. Allur ágóði er nýttur til að efla félagið.

Skrifstofan er í Katrínartúni 4, 105 Reykjavík.