Verð og skilmálar
Verð hverrar ferðar kemur fram í dagskránni, bæði almennt verð og félagsverð. Hér eru skilmálar ferða og skálagistingar á einum stað.
Skilmálar ferða
Staðfestingargjald og greiðsla
Staðfestingargjald, 8.000 kr., þarf að inna af hendi þegar ferð er pöntuð og greiða þarf að fullu fyrir ferð eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför. Staðfestingargjaldið er óendurkræft.
Breytingar á ferðum
Útivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Tryggingar
Útivist tryggir hvorki farþega né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð og eru hvattir til að vera með ferða-, forfalla- og slysatryggingar.
Börn og makar
Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn. Í ferðum Útivistar greiða börn á aldrinum 7–17 ára hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt.
Styrkir stéttarfélaga
Mörg stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til líkamsræktar. Margir nýta þessa styrki til að ferðast með Útivist.
Ef þú þarft að afpanta ferð
Það sem Útivist heldur eftir fer eftir því hve langur fyrirvari er á afpöntun. Staðfestingargjaldið, 8.000 kr., er óendurkræft.
- 28 dagar eða meiraStaðfestingargjald
- 14–27 dagar25% af verði
- 7–13 dagar50% af verði
- 4–6 dagar75% af verði
- 3 virkir dagar eða skemurAllt fargjaldið
Ef þátttakandi mætir ekki til brottfarar á réttum tíma á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar.
Skoða ferðir og verðVerð skálagistingar
| Skáli | Almennt verð | Félagsmenn |
|---|---|---|
| Básar | 16.800 kr. | 7.400 kr. |
| Fimmvörðuskáli1. júlí – 15. ágúst: 15.300 kr. | 12.900 kr. | 6.300 kr. |
| Strútur | 12.900 kr. | 6.300 kr. |
| Álftavötn | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Skælingar | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Sveinstindur | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Tindfjallasel | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Tjald | 2.500 kr. | 1.300 kr. |
| Gistináttaskattur á tjald | 400 kr. | 400 kr. |
| Sturta | 1.000 kr. | 550 kr. |
| Viðvera | 700 kr. | 500 kr. |
| Viðvera með aukinni aðstöðu | 1.700 kr. | 1.100 kr. |
Verð á mann fyrir nóttina. Gistináttaskattur, 800 kr., er innifalinn í skálagistingu. Virðisaukaskattur, 11%, er innifalinn í gistigjöldum.
Ef þú þarft að afbóka gistingu
- 30 dagar eða meiraStaðfestingargjald
- 8–29 dagar50% af heildargjaldi
- 7 dagar eða skemurEngin endurgreiðsla
Skilmálar skálagistingar
Staðfestingargjald
Við bókun þarf að greiða staðfestingargjald, 2.000 kr. á mann fyrir hverja nótt, sem er ekki endurgreitt ef hætt er við bókun eða fækka þarf bókuðum plássum.
Börn
Börn á aldrinum 7–17 ára fá gistingu í skála með 50% afslætti og börn 0–6 ára fá gistinguna frítt. Börn 0–12 ára fá frítt á tjaldsvæðum. Gistináttagjald er þó óháð aldri.
Óviðráðanleg atvik
Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn. Ef óviðráðanlegar aðstæður hindra aðgang að skálanum er reynt eftir bestu getu að koma til móts við viðskiptavini, sérstaklega að vetrarlagi.
Hópabókanir
Þegar pantað er í skála fyrir hóp þarf að greiða í einu lagi fyrir alla. Forsvarsmaður hópsins framvísar nafnalista þar sem kennitölur félagsmanna í Útivist koma fram. Eftirstöðvar skal greiða eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir bókaðan gistidag.
Afbókanir
Allar afbókanir skal senda með tölvupósti á utivist@utivist.is.
