Sveinstindur
18 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst · GPS N64°05,176 / V18°24,946
Skálinn við Sveinstind stendur suðaustan við fjallið og er í grunninn gamall gangnamannaskáli. Skaftá rennur rétt hjá skálanum og setur mark sitt á landslagið, sem að miklu leyti er þakið iðjagrænum mosa.
Gagnlegar upplýsingar
- Gistipláss
- 18
- Tjaldstæði
- Til staðar
- Salerni og vatn
- Salernishús með rennandi vatni yfir hásumarið, ekki klósettpappír
- Eldunaraðstaða
- Gashellur og eldunaráhöld
- Upphitun
- Gasofn
- Verð fyrir nóttina
- 9.800 kr. almennt verð, 5.200 kr. fyrir félagsmenn
- Hægt er að panta gistingu á vetrartíma í gegnum skrifstofu.
Áhugaverðir staðir í nágrenninu
- Sveinstindur
- Langisjór
- Hringleið um Langasjó
- Fögrufjöll
Um skálann
Félagsmenn í Útivist endurbyggðu skálann árið 1999. Byggt var ofan á gömlu vegghleðsluna og haldið byggingarlagi gamla tímans. Endurbyggingin heppnaðist afskaplega vel og skálinn fellur vel inn í umhverfið.
Aðkoma
Bílvegur liggur alveg heim að skála. Frá Fjallabaksleið nyrðri (F208) er beygt inn á slóðann að Langasjó (F235). Við suðurenda Langasjávar, rétt undir Sveinstindi, er beygt til austurs (N64°06,456 / V18°26,765) og ekið eftir slóða sem fylgir rótum fjallsins að Skaftá og síðan um 1 km til norðurs að skálanum. Fyrri hluta sumars geta verið sandbleytur í slóðanum.
Skálavarsla
Skálavörður er ekki í skálanum, en skálaverðir í Strútsskála og Hólaskjóli hafa eftirlit með honum. Tjaldstæði er hægt að greiða hjá skálaverði í Strút, á skrifstofu Útivistar eða í þar til gerðan bauk í skálanum.
Myndir
Staðsetning
GPS-hnit: N64°05,176 / V18°24,946. Kort: OpenStreetMap.
Gönguleiðir sem liggja um skálann
Skrifstofa Útivistar: 562 1000 · utivist@utivist.is
