Fjallaskálar Útivistar
Ferðafélagið Útivist rekur nokkra af skemmtilegustu fjallaskálum landsins: Bása á Goðalandi, Fimmvörðuskála, Strút, Álftavötn, Skælinga, Sveinstind og Tindfjallasel.
- 1Básar á Goðalandi71 gistipláss · Skálagisting allt árið16.800 kr.Félagsverð 7.400 kr.7.400 kr.Almennt verð 16.800 kr.
- 2Fimmvörðuskáli18 gistipláss · Opinn 15. júní til 31. ágúst12.900 kr.Félagsverð 6.300 kr.6.300 kr.Almennt verð 12.900 kr.
- 3Strútur á Mælifellssandi26 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst12.900 kr.Félagsverð 6.300 kr.6.300 kr.Almennt verð 12.900 kr.
- 4Álftavötn20 gistipláss · Salerni og rennandi vatn yfir hásumarið9.800 kr.Félagsverð 5.200 kr.5.200 kr.Almennt verð 9.800 kr.
- 5Skælingar16 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst9.800 kr.Félagsverð 5.200 kr.5.200 kr.Almennt verð 9.800 kr.
- 6Sveinstindur18 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst9.800 kr.Félagsverð 5.200 kr.5.200 kr.Almennt verð 9.800 kr.
- 7Tindfjallasel30 gistipláss · Almennt opinn 1. júlí til 31. ágúst9.800 kr.Félagsverð 5.200 kr.5.200 kr.Almennt verð 9.800 kr.
Básar á Goðalandi eru höfuðvígi Útivistar og segja má að þar slái hjarta félagsins. Gönguleiðir við allra hæfi er að finna í nágrenninu.
Fimmvörðuskáli stendur á Fimmvörðuhálsi þar sem hann er hæstur, um það bil 600 metra austan við vörðurnar fimm sem hálsinn dregur nafn sitt af. Örstutt frá skálanum eru nýjustu eldstöðvar Íslands, Magni og Móði.
Skálinn við Strút stendur í fallegu dalverpi inn af Mælifellssandi og er ákjósanlegur áningarstaður á milli Álftavatna í austri og Hvanngils eða Emstra í vestri.
Skálinn í Álftavötnum kúrir á gróðursælum bökkum vatnanna, vinalegur og þægilegur skáli án alls íburðar. Þar upplifa gestir einfaldleika hálendisins og kyrrð fjallanna.
Umhverfis skálann í Skælingum eru sérstæðir hraundrangar sem breyta svæðinu í náttúrulegan lystigarð. Skálinn einkennist af fornri íslenskri byggingarhefð með vegghleðslum úr grjóti.
Skálinn við Sveinstind stendur suðaustan við fjallið og er í grunninn gamall gangnamannaskáli. Skaftá rennur rétt hjá skálanum og setur mark sitt á landslagið, sem að miklu leyti er þakið iðjagrænum mosa.
Tindfjallasel er neðsti skálinn af þremur í Tindfjöllum. Hann er í 680 m hæð, afar vel búinn og tilvalið að dveljast þar og njóta útivistarsvæðisins í Tindfjöllum, hvort sem er að sumri eða vetri.
Verð skálagistingar
Verð á mann fyrir nóttina. Gistináttaskattur, 800 kr., er innifalinn í skálagistingu.
| Skáli | Almennt verð | Félagsmenn |
|---|---|---|
| Básar | 16.800 kr. | 7.400 kr. |
| Fimmvörðuskáli1. júlí – 15. ágúst: 15.300 kr. | 12.900 kr. | 6.300 kr. |
| Strútur | 12.900 kr. | 6.300 kr. |
| Álftavötn | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Skælingar | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Sveinstindur | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
| Tindfjallasel | 9.800 kr. | 5.200 kr. |
Tjaldsvæði og þjónusta
Gistináttaskattur bætist við gistigjöld í tjaldi.
| Þjónusta | Almennt verð | Félagsmenn |
|---|---|---|
| Tjald | 2.500 kr. | 1.300 kr. |
| Gistináttaskattur á tjald | 400 kr. | 400 kr. |
| Sturta | 1.000 kr. | 550 kr. |
| Viðvera | 700 kr. | 500 kr. |
| Viðvera með aukinni aðstöðu | 1.700 kr. | 1.100 kr. |
- Börn 0–6 ára gista frítt í skála
- Börn 7–17 ára fá 50% afslátt í skála
- Börn 0–12 ára fá frítt á tjaldsvæðum
Bókun í skála
Veldu skála, dagsetningar og fjölda gesta á síðu hvers skála. Við bókun er greitt staðfestingargjald, 2.000 kr. á mann fyrir hverja nótt. Félagsmenn þurfa að hafa staðfestingarkóða til að bóka gistingu á félagsverði.
