Sveinstindur – Skælingar
Lengd: 4 dagar · Gisting: Sveinstindur, Skælingar og Hólaskjól · Trúss: Farangur fluttur milli náttstaða

Sveinstindur–Skælingar er helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind, þar sem útsýnið yfir Langasjó er hreint ólýsanlegt, og lýkur í Hólaskjóli eftir göngu um Eldgjá.
Dag fyrir dag
- 1Langisjór – Sveinstindur5–6 km · 500 m hækkun
Brottför frá Mjódd kl. 08:00. Ekið upp Skaftártungu og að Langasjó. Gengið er á Sveinstind (1.098 m y.s.) og þaðan niður sunnan megin að skála Útivistar við bakka Skaftár. Í góðu skyggni sést til Öræfajökuls í austri og Heklu í vestri.
- 2Sveinstindur – Skælingar18 km · 600–700 m hækkun
Gengið með Skaftá, fram hjá flúðum og nafnlausum blæjufossi og fram um Hvanngil þar sem þarf að vaða Hvanná. Farið er um Uxatindagljúfur milli Uxatinda og Grettis, upp á Biðil og fram Skælingana að skála Útivistar í Stóragili.
- 3Skælingar – Hólaskjól20–22 km · 500–600 m hækkun
Gengið fram Skælinga um Miðbotna og upp að börmum Eldgjár. Gjátindur (943 m y.s.) toppaður, farið ofan í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður í návígi áður en gengið er niður í Hólaskjól þar sem gist er síðustu nóttina.
- 4Hólaskjól og heimferðStutt ganga
Farið í stutta göngu í nágrenni Hólaskjóls, t.d. upp hraunið með Syðri-Ófæru að fossinum sem heimamenn kalla nafnlausa fossinn. Brottför frá Hólaskjóli upp úr kl. 10:00.
Gott að vita
Í upphafi ferðar er ekið fram hjá Hólaskjóli og því geta þeir sem vilja gera sér dagamun í lok ferðar skilið þar eftir vistir.
