Sveinstindur - Skælingar
24.–27. júlí 2027 · Frá Mjódd kl. 08:00

Þessi leið er ein helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar, meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga. Ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli. Ferðirnar eru trússferðir. Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum.
Síðasta kvöldið er boðið upp á grillveislu sem þáttakendur sjá saman um að útbúa.
Leiðin dag fyrir dag
- 1Langisjór – Sveinstindur5–6 km · 500 m hækkun
Brottför frá Mjódd kl. 08:00. Ekið upp Skaftártungu og að Langasjó. Gengið er á Sveinstind (1.098 m y.s.) og þaðan niður sunnan megin að skála Útivistar við bakka Skaftár. Í góðu skyggni sést til Öræfajökuls í austri og Heklu í vestri.
- 2Sveinstindur – Skælingar18 km · 600–700 m hækkun
Gengið með Skaftá, fram hjá flúðum og nafnlausum blæjufossi og fram um Hvanngil þar sem þarf að vaða Hvanná. Farið er um Uxatindagljúfur milli Uxatinda og Grettis, upp á Biðil og fram Skælingana að skála Útivistar í Stóragili.
- 3Skælingar – Hólaskjól20–22 km · 500–600 m hækkun
Gengið fram Skælinga um Miðbotna og upp að börmum Eldgjár. Gjátindur (943 m y.s.) toppaður, farið ofan í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður í návígi áður en gengið er niður í Hólaskjól þar sem gist er síðustu nóttina.
- 4Hólaskjól og heimferðStutt ganga
Farið í stutta göngu í nágrenni Hólaskjóls, t.d. upp hraunið með Syðri-Ófæru að fossinum sem heimamenn kalla nafnlausa fossinn. Brottför frá Hólaskjóli upp úr kl. 10:00.
Gott að vita
- ÚtbúnaðurListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir. Opna gátlista: Trússferð
- Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
- GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
- Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
