Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Fimmvörðuháls - hægferð - Gist á Fimmvörðuhálsi og í Básum

3.–5. júlí 2027 · Kl. 8.00 frá Mjódd

Miðlungs erfiðar ferðirFlestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er mörgum kær, enda ekki óalgengt að fyrstu kynnin af útivist séu í Fimmvörðuhálsgöngu. Í þessari ferð er lögð áhersla á að hafa rúman tíma í gönguna þannig að hægt sé að njóta náttúrunnar. Lagt af stað að morgni dags á föstudegi og gengið frá Skógum á Fimmvörðuháls og gist þar í skála Útivistar. Laugardag verður gengið í Bása og gist þar seinni nóttina. Á sunnudegi verður farið í létta göngu á Goðalandi áður en haldið er heim á leið.

Athugið að farangur er trússaður í Bása en ekki er hægt að keyra í Fimmvörðuskála og því þarf að bera svefnpoka og mat fyrir fyrsta sólarhringinn.

Brottför: 3. júlí kl. 8:00 frá Mjódd/bíómegin
Heimkoma: 5. júlí á milli kl. 17:00 og 18:00

Innifalið: Akstur, leiðsögn, tvær skálagistingar, heit sturta og sameiginleg kvöldmáltíð í Básum

Almennar upplýsingar um Fimmvörðuhálsferðir Útivistar og útbúnaðarlisti.

Leiðin yfir hálsinn

  1. 1
    Skógar – Fimmvörðuskáli16 km · um 5 klst.

    Leiðin liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði. Efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1.100 m hæð. Frá skálanum er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsinum.

  2. 2
    Fimmvörðuskáli – Básar13 km · um 4,5 klst.

    Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn. Þaðan er haldið um Heljarkamb, farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Af norðanverðum hálsinum er í góðu skyggni ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og Landmannaafrétt.

Leiðarlýsing: Fimmvörðuháls

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir. Opna gátlista: Trússferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar

Aðrar brottfarir í sömu ferð