Strútsstígur
Lengd: 4 dagar · Gisting: Álftavötn og Strútur · Trúss: Farangur fluttur milli náttstaða

Um sunnanvert Fjallabak liggur falleg gönguleið frá Hólaskjóli í austri og vestur í Hvanngil. Fagrir fossar verða á vegi okkar og fögur fjallasýn, og hin rómaða Strútslaug bíður göngumanna.
Dag fyrir dag
- 1Hólaskjól – Álftavötn6–7 km · 2 klst.
Brottför með rútu frá Mjódd kl. 08:00. Ekið í Hólaskjól þar sem gangan hefst. Stutt og þægileg ganga að Álftavötnum þar sem gist er í gömlum gangnamannaskála sem Útivist hefur endurbyggt.
- 2Álftavötn – Strútur20–24 km · 7–8 klst.
Gengið með Syðri-Ófæru og inn með hlíðum Svartahnúksfjalla. Áfram liggur leiðin um Hólmsárbotna og að Strútslaug þar sem göngumönnum býðst að fara í bað. Frá lauginni er haldið að Strútsskála þar sem gist er næstu tvær nætur.
- 3Dagur við StrútLeiðarval eftir veðri
Dagurinn nýttur til gönguferða í nágrenni Strúts, t.d. göngu á Torfajökul, eftir hinu sérstaka Krókagili, göngu á Strút eða eftir Strútsgili.
- 4Strútur – Hvanngil18 km · 7 klst.
Farið vestur yfir Veðurháls með Mýrdalsjökul á vinstri hönd. Gengið eftir Mælifellssandi hjá Slysaöldu og þaðan yfir Kaldaklofskvísl að Hvanngili þar sem rúta sækir hópinn.
Undirbúningsfundur
Haldinn er undirbúningsfundur fyrir hverja ferð þar sem fararstjóri kynnir leiðina og veitir ráð um útbúnað. Undirbúningsfundir eru yfirleitt haldnir viku fyrir brottför.
