Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Leggjabrjótur

16. júní 2027

16–18 kmVegalengd
500 mHækkun
6–7 klst.Göngutími

Árleg næturganga Útivistar yfir Leggjabrjót um sumarnótt. Það er fátt betra en að vera á ferðinni á björtum sumarkvöldum. Þetta er greiðfær leið þó nafnið gefi annað til kynna. Frá Svartagili liggur leiðin um Öxarárdal að Myrkavatni og upptökum Öxarár. Síðan verður gengið um Leggjabrjót, með Sandvatni og um Hrísháls niður í Botnsdal. Þessi ferð er góð upphitun fyrir Jónsmessugönguna yfir Fimmvörðuháls.

Vegalengd 16-18 km. Hækkun 500 m. Göngutími 6-7 klst.

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina. Opna gátlista: Dagsferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar