Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Raðganga um Reykjaveginn, 3. leggur

3. apríl 2027 · Brottför kl. 8:30: Hist á bílastæði við íþróttahúsið Ásvöllum og rúta tekin þaðan

Miðlungs erfiðar ferðirFlestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.
14 kmVegalengd
250 mHækkun

Raðganga um Reykjaveginn, 3. leggur: Leirdalur - Sogin

Rúta tekin frá Ásvöllum. Gengið er frá bílastæðinu í Leirdal og gömlu Krýsuvíkurgötunni fylgt yfir Grákvíguhraun. Þaðan er farið inn á Reykjaveginn og honum fylgt til norðurs, um hraun og meðfram Núpshlíðarhálsi, um Selsvelli áfram að að bílastæðinu við Sogalæk. Þaðan tekur rútan okkur aftur í bílana.

Vegalengd er um 14 km og 250 m hækkun

Um Raðgönguna um Reykjaveginn 2027:
Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.

Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.

Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins.

Hugmyndin að Reykjaveginum kom fram árið 1993 þegar Ari Trausti Guðmundsson kynnti hana fyrir Ferðamálanefnd Reykjavíkur. Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins tóku síðan verkefnið að sér og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum komu að undirbúningi og fjármögnun þess, ásamt útivistarfélögum og fleiri aðilum. Árið 1995 var ákveðið að leggja og merkja gönguleiðina og var hún stikuð sumarið 1996. Hugmyndin var að skapa samfellda gönguleið yfir Reykjanesskagann, með skálum eða gistimöguleikum á völdum stöðum.

Leiðin liggur þvert yfir Reykjanesskagann, frá sjávarsíðunni yst á Reykjanesi, um Grindavík, hraunin og hálsana á miðjum skaganum, yfir Bláfjöll og Hellisheiði og að Hengilssvæðinu og Nesjavöllum. Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag sem hefur að mestu mótast af eldvirkni: gígaraðir, hraun, sprungur, misgengi og jarðhitasvæði, en einnig gróðursæla dali og vötn. Víða er jafnframt gengið eftir gömlum þjóðleiðum, svo sem Prestastíg, Hrauntungustíg, Undirhlíðavegi og Selvogsgötu. Reykjavegurinn er því ekki aðeins löng gönguleið heldur líka eins konar þverskurður í gegnum jarðfræði, náttúru og samgöngusögu Reykjanesskagans.

Byrjun leiðarinnar hefur breyst vegna eldsumbrotanna við Grindavík frá árinu 2021. Ný hraun hafa farið yfir hluta hinnar upphaflegu leiðar og því þarf nú að ganga breyttar leiðir á fyrstu leggjunum. Vegalengdir og nákvæmlega leiðarinnar getur því verið mismunandi eftir því hvaða útfærsla er farin.

Leggir raðgöngunnar

  1. 1
    Reykjanesviti – Golfskálinn í Grindavík18 km · 200 m hækkun

    Í upphafi er fylgt hluta af Hundrað gíga leiðinni, um einkennandi eldfjallalandslag yst á Reykjanesi. Reykjaveginum er fylgt að Prestastíg, gamalli þjóðleið milli Hafna og Staðarhverfis í Grindavík.

  2. 2
    Golfskálinn í Grindavík – Leirdalur16 km · 350 m hækkun

    Ný hraun hafa farið yfir stóran hluta upphaflegu leiðarinnar og því liggur leggurinn nú um Grindavík, meðfram Suðurstrandarvegi að Festarfjalli, niður í Nátthaga og að bílastæðinu í Leirdal.

  3. 3
    Leirdalur – Sogin14 km · 250 m hækkun

    Gömlu Krýsuvíkurgötunni fylgt yfir Grákvíguhraun og síðan Reykjaveginum til norðurs, um hraun og meðfram Núpshlíðarhálsi, um Selsvelli að bílastæðinu við Sogalæk.

  4. 4
    Sogin – Kaldársel22 km · 500 m hækkun

    Yfir háls við Selsvallafjall og niður að Djúpavatni, norður Móhálsadal og inn á Hrauntungustíg, gamla þjóðleið milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Að lokum er Undirhlíðavegi fylgt norður í Kaldársel.

  5. 5
    Kaldársel – Bláfjallaskáli16–17 km · 500–550 m hækkun

    Selvogsgötu fylgt um Húsfellsbruna upp að Grindaskörðum. Við Draugahlíðar er beygt til austurs og gengið um hraunið við Strompa að Bláfjallaskála.

  6. 6
    Bláfjallaskáli – Hellisheiðarvirkjun20–22 km · 700 m hækkun

    Upp á Bláfjallahorn, hæsta hluta Reykjavegarins, niður austan Bláfjalla, um Leitahraun að Eldborgunum, yfir Þrengslaveg og um Svínahraunsbruna fram hjá Kolviðarhóli.

  7. 7
    Hellisheiðarvirkjun – Nesjavellir15 km · 500 m hækkun

    Yfir Húsmúla og inn í Engidal, undir Henglinum inn í Marardal, upp á Kýrdalshrygg og Háhrygg og niður að Nesjavallavirkjun, þar sem Reykjaveginum lýkur.

Leiðarlýsing: Reykjavegurinn

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina. Opna gátlista: Dagsferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar