Laugavegurinn
Lengd: 5 dagar · Lokastaður: Básar á Goðalandi · Trúss: Farangur fluttur milli náttstaða

Gönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegur. Í ferðinni gefst kostur á að kynnast ótrúlega fjölbreyttu og fögru landslagi: heitum laugum, hverum og jöklum.
Dag fyrir dag
- 1LandmannalaugarSíðdegisganga
Brottför kl. 09:00 að morgni og ekið í Landmannalaugar þar sem farið er í síðdegisgöngu. Þar er úr mörgum gönguleiðum að velja.
- 2Landmannalaugar – Álftavatn24 km · 9–10 klst.
Lengsta dagleið ferðarinnar. Gengið um Laugahraun að Brennisteinsöldu, inn að Stórahver og áfram að Hrafntinnuskeri. Þaðan liggur leiðin með Reykjafjöllum og Kaldaklofsfjöllum fram á brúnir Jökultungna og að Álftavatni.
- 3Álftavatn – Botnar16 km · 6–7 klst.
Haldið austur yfir Brattháls og í Hvanngil. Farið yfir Kaldaklofskvísl á göngubrú og skömmu síðar þarf að vaða Bláfjallakvísl. Farið yfir Nyrðri-Emstruá á brú og áfram um slétta sanda niður að skála og tjaldstæði í Botnum.
- 4Botnar – Básar15 km · 5–7 klst.
Farið yfir Syðri-Emstruá á göngubrú og haldið suður Almenninga, um Slyppugil og Bjórgil og yfir Ljósá. Gengið upp og yfir Kápu og niður að Þröngá, sem þarf að vaða. Eftir það er leiðin greið um Þórsmörk, yfir göngubrú á Krossá og inn að skálunum í Básum. Um kvöldið er grill í boði Útivistar.
- 5Básar og heimferðGanga að eigin vali
Á síðasta degi er kjörið að fara í gönguferð áður en haldið er heimleiðis, t.d. á Réttarfell, Útigönguhöfða, Básahringinn eða í Strákagil.
Undirbúningsfundur
Fyrir hverja ferð er haldinn fundur þar sem fararstjóri segir frá ferðatilhögun og nauðsynlegum útbúnaði.
