Skrifstofa: mán.–fim. kl. 12–17, fös. kl. 12–16Sími 562 1000
Bóka ferð

Laugavegur, fyrsta nótt í Landmannalaugum

15.–19. júlí 2027 · Kl. 09:00 frá Mjódd

Erfiðar ferðirEinungis fyrir vana ferðamenn sem geta borið með sér allan útbúnað og eru færir um að takast á við ófyrirsjáanlegan vanda.

Gönguleiðin á milli Landmannalauga og Þórsmerkur (Bása) kallast Laugavegur. Útivist býður á hverju sumri upp á nokkrar ferðir um svæðið og er oftast um að ræða trússferðir sem taka 5 daga og er ýmist gist í skálum eða tjöldum á leiðinni. Í þessari ferð er gist í Landmannalaugum og svo gengið í Bása á þremur dögum. Í ferðinni gefst ferðafólki kostur á að kynnast ótrúlega fjölbreyttu og fögru landslagi. Má þar nefna heitar laugar, hveri og jökla. Litadýrð og fegurð landslagsins er slík að ekki verður lýst með orðum.

Leiðin dag fyrir dag

  1. 1
    LandmannalaugarSíðdegisganga

    Brottför kl. 09:00 að morgni og ekið í Landmannalaugar þar sem farið er í síðdegisgöngu. Þar er úr mörgum gönguleiðum að velja.

  2. 2
    Landmannalaugar – Álftavatn24 km · 9–10 klst.

    Lengsta dagleið ferðarinnar. Gengið um Laugahraun að Brennisteinsöldu, inn að Stórahver og áfram að Hrafntinnuskeri. Þaðan liggur leiðin með Reykjafjöllum og Kaldaklofsfjöllum fram á brúnir Jökultungna og að Álftavatni.

  3. 3
    Álftavatn – Botnar16 km · 6–7 klst.

    Haldið austur yfir Brattháls og í Hvanngil. Farið yfir Kaldaklofskvísl á göngubrú og skömmu síðar þarf að vaða Bláfjallakvísl. Farið yfir Nyrðri-Emstruá á brú og áfram um slétta sanda niður að skála og tjaldstæði í Botnum.

  4. 4
    Botnar – Básar15 km · 5–7 klst.

    Farið yfir Syðri-Emstruá á göngubrú og haldið suður Almenninga, um Slyppugil og Bjórgil og yfir Ljósá. Gengið upp og yfir Kápu og niður að Þröngá, sem þarf að vaða. Eftir það er leiðin greið um Þórsmörk, yfir göngubrú á Krossá og inn að skálunum í Básum. Um kvöldið er grill í boði Útivistar.

  5. 5
    Básar og heimferðGanga að eigin vali

    Á síðasta degi er kjörið að fara í gönguferð áður en haldið er heimleiðis, t.d. á Réttarfell, Útigönguhöfða, Básahringinn eða í Strákagil.

Leiðarlýsing: Laugavegurinn

Gott að vita

  • ÚtbúnaðurListi fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Hægt er að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir. Opna gátlista: Trússferð
  • Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
  • GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
  • Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
Verð og skilmálar