Dalastígur
Lengd: 4 dagar · Gisting: Hungurfit, Dalakofinn og Landmannahellir · Trúss: Farangur fluttur milli náttstaða

Dalastígur er gönguleið á fáförnum en virkilega áhugaverðum slóðum að Fjallabaki, frá Mosum skammt frá Markarfljóti í Landmannalaugar.
Dag fyrir dag
- 1Mosar – Hungurfit15–16 km
Gengið í Þverárgil og komið við í sérstæðum gististað gangnamanna í hellisskúta. Áfram er haldið í skálann í Hungurfitjum þar sem gist er fyrstu nóttina.
- 2Hungurfit – Dalakofinn24 km
Gengið upp Skyggnishlíðar að Skyggnisvatni, síðan að Laufavatni í Laufahrauni og áfram í Dalakofann.
- 3Dalakofinn – Landmannahellir16–18 km
Leiðin liggur yfir norðanverðan Svartakamb að Rauðufossafjöllum. Þar finna göngumenn sérkennilega uppsprettu Rauðufossakvíslar og ánni er fylgt niður fyrir Rauðufossa.
- 4Landmannahellir – Landmannalaugar17 km
Gengið um Hellismannaleið í Landmannalaugar, þar sem rúta bíður eftir hópnum.
Ferðir á dagskrá
Engin ferð um þessa leið er á dagskrá eins og er. Skoða allar ferðir
