Dagsferð í Þórsmörk 60+
14. júní 2027 · Kl 9:00 frá Mjódd

Dagsferð í Þórsmörk 60+
Hvenær gafst þér síðast tækifæri til að njóta fegurðar Þórsmerkur og kyrrðarinnar sem þar ríkir?
Þessi ferð er hugsuð fyrir 60+ sem hafa áhuga á að skoða Þórsmerkursvæðið í allri sinni dýrð. Þessar ferðir fóru fyrst árið 2026 og var mikil ánægja með þær.
Í ferðinni er farið um helstu svæði Þórsmerkur og fengin innsýn í fjölbreytta náttúru hennar. Við tökum rútu úr Reykjavík og höldum inn í Þórsmörk og Goðaland með smá stoppi á leiðinni. Í Básum þar sem hjarta Útivistar slær, tekur staðarhaldari á móti okkur og við förum í skoðunarferð og þau sem vilja taka Básahringinn sem er stuttur en afar skemmtilegur göngutúr hafa færi á því. Svo er snæddur hádegisverður í litla veitingaskálanum okkar, Básabita. Svo liggur leiðin áfram á rútunni yfir á svæði FÍ í Langadal þar sem stoppað verður stutt. Þeir sem vilja, ganga yfir í Húsadal en aðrir taka rútuna áfram þangað. Í Húsadal bíður kaffi og kaka áður en haldið er til baka til Reykjavíkur.
Þessi ferð er fyrir alla, hvort sem þau hafa hug á stuttum göngum eða vilja nota rútuna meira. Við njótum fallegs umhverfis, góðs félagsskapar og góðs matar!
Markmiðið er einfalt: að njóta samverunnar og eiga ánægjulega stund í þessari einstöku náttúru.
Innifalið er:
Rúta til og frá Reykjavík
Leiðsögn
Hádegismatur í Básum
Kaffi og kaka í Húsadal
Gott að vita
- ÚtbúnaðurListi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina. Opna gátlista: Dagsferð
- Börn og makarBörn á aldrinum 7–17 ára greiða hálft gjald og yngri en 7 ára greiða ekki neitt. Maki félagsmanns og börn yngri en 18 ára njóta sömu kjara og félagsmaðurinn.
- GreiðslaStaðfestingargjald, 8.000 kr., er greitt þegar ferð er pöntuð og ferðin að fullu eigi síðar en 4 vikum fyrir brottför.
- Veður og aðstæðurÚtivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.
